1 kassi Anthon Berg súkkulaðihúðað marsípan með hinberjum í appelsínulíkjör (220g)
1 stk Anthon Berg marsípan stykki með nougat (40g)
1 stk Anthon Berg marsípan stykki með koníaki (40g)
100 g hágæða súkkulaði
50 ml rjómi
3 stk Anthon Berg hinber í appelsínulíkjör konfekt
1 dl trönuber
1 dl sykur
Leiðbeiningar
Setjið konfektið og trönuberin inn í ísskáp.
Þeytið rjómann og geymið.
Þeytið eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman.
Blandið rjómanum varlega saman við eggjarauðu blönduna með sleikju.
Skerið kælda konfektið smátt niður og blandið saman við ísinn varlega með sleikju. Gott er að taka bitana strax í sundur um leið og þeir eru skornir svo þeir klessist ekki allir saman og blanda saman við ísinn í skömmtum.
Hellið ísnum í form og setjið í frystinn, það er best að frysta ísinn í minnst 1 sólahring.
Útbúið súkkulaðið með því að hita rjómann vel, setja súkkulaðið í skál og hella svo heitum rjómanum yfir, blanda saman með skeið þar til súkkulaðisósa myndast.
Skerið Anthon Berg hindberja konfektið til helminga niður.
Takið trönuberin úr ísskápnum og setjið þau költ á disk og sykurinn strax yfir, hrærið í svo að sykurinn hjúpi þau öll.
Setjið ísinn á kökudisk og fjarlægið formið, hellið súkkulaðinu yfir ísinn og dreifið konfektinu og trönuberjunum yfir. Þið gætuð þurft að halda konfektinu á sínum stað þangað til súkkulaðið stirnar.