fbpx

Espresso bananakaka með vanillu, kanil og kaffikremi

Kökur með kaffibragði eru bestar og ég reyni að troða kaffi í helst sem flest. Gott og vel, smá ýkjur en ég er mjög hrifin af öllu sem kaffibragð er af. Þessi blanda, bananar, vanilla, kanill og kaffi hljómar eins og eitthvað sem gæti alls ekki passað saman en því fer fjarri. Þetta er þvert á móti stórkostleg blanda sem ég mæli með að þið prófið. Kakan sjálf er mjög mjúk en aðeins þétt í sér. Kremið er síðan svo ólýsanlega gott að ég ætla ekki að reyna það. Aðferðin við það er aðeins öðruvísi en við eigum að venjast en passar svo vel með kökunni. Og líklega flestum kökum ef því er að skipta.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 140 g hveiti
 1 tsk lyftiduft
 0,50 tsk matarsódi
 0,50 tsk sjávarsalt
 1 tsk kanill
 0,50 tsk vanillukorn frá Rapunzel
 120 ml mjólk
 1,50 msk skyndikaffiduft
 100 g sykur
 60 ml jurtaolía
 1 stk stórt egg
 2 stk meðalstórir, þroskaðir bananar
 1 tsk kakó frá Rapunzel, til að dusta yfir kökuna

Leiðbeiningar

1

Við byrjum á að undirbúa kremið. Setjið smjör, púðursykur og 2 msk. af mjólkinni í lítinn pott. Bræðið saman við meðalhita og þegar blandan fer aðeins að bubbla takið þið pottinn af hellunni.
Hrærið svo vanillu og kaffi saman við.
Setjið blönduna í hitaþolna skál og kælið.

2

Hitið ofninn í 175°C blástur. Smyrjið 20cm hringlaga form og setjið til hliðar.

3

Blandið þurrefnunum saman í skál.

4

Setjið mjólkina í lítinn pott ásamt kaffiduftinu. Velgið mjólkina þar til kaffiduftið hefur leyst upp.

5

Stappið bananana og setjið aðeins til hliðar.

6

Í annarri skál þeytið saman sykur, olíu, vanillukorn, egg og kaffimjólkina. Setjið þurrefnin saman við ásamt stöppuðu bönununum.

7

Setjið deigið í formið og bakið í 30 mín eða þar til prjónn sem stungið er í kökuna kemur hreinn út.
Kælið svo botninn á grind.

8

Þegar púðursykursblandan er orðin köld er hægt að klára að útbúa kremið.
Setjið blönduna í skál ásamt flórsykrinum og 1 msk. af mjólk. Þeytið saman þar til kremið er orðin létt og ljóst.

9

Smyrjið kreminu á kalda kökuna og dustið kakódufti yfir.

Berið fram með góðum kaffibolla.

Uppskrift eftir Völlu Gröndal

MatreiðslaMatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir