fbpx

Enskar rúsínuskonsur & lemon curd

Bragðgóðar skonsur, skemmtileg tilbreyting með kaffinu.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Skonsur
 400g hveiti
 3 tsk lyftiduft
 5 msk sykur
 120g ískalt smjör í litlum bitum
 2 og 1/2dl nýmjólk köld
 50g lífrænar rúsínur frá Rapunzel
 rifinn börkur af einni sítrónu
 1 tsk sítrónudropar
Lemon Curd
 3 sítrónur - safi + raspaður börkur
 1 og 1/2 bolli sykur
 200g smjör
 4 stór egg
 1/2 bolli sítrónusafi (af sítrónunum)
 1/4 tsk salt

Leiðbeiningar

Skonsur
1

Setjið þurrefni í matvinnsluvélina og "púlsið" nokkrum sinnum, bætið við smjörinu og blandið rétt svo þannig að stærstu bitarnir af smjörinu séu á stærð við baunir.

2

Setjið rúsínur, sítrónubörk og sítrónudropa og "púlsið" svona tvisvar. Bætið mjólkinni út í og blandið rétt svo þannig að deigið loði saman.

3

Setjið á hveitistráða borðplötu og hnoðið lítillega, fletjið út þannig að deigið sé 2-3cm á þykkt. Skerið út skonsurnar með glasi eða hringlaga piparkökumóti. Varist samt að snúa glasinu í hringi þegar þið skerið kökurnar, best að skera bara beint niður. Þetta gæti haft áhrif á hvernig þær lyfta sér í ofninum. Leggið þær á plötu klædda bökunarpappír og bakið í 12-14 mín eða þangað til þær eru gullinbrúnar. Látið kólna í svona 15 mín.

Lemon Curd
4

Skolið sítrónurnar vel og þerrið. Raspið af þeim börkinn en passið að raspa bara gula hlutann, alls ekki fara niður í þetta hvíta, það er beiskt og ekki gott að hafa með.

5

Setjið sykurinn og börkinn í matvinnsluvél og blandið saman í smástund. Bætið út í matvinnsluvélina smjörinu, salti og sítrónusafanum og blandið, bætið svo einu eggi úti í einu. Setjið blönduna í stálskál eða pott og hrærið stöðugt í yfir vatnsbaði. Hrærið stöðugt í þangað til blandan fer að þykkna. Þetta tekur svona 15 mínútur og mjög gott að gera þetta á meðan skonsurnar klára að bakast og kólna. Ekki freistast til þess að setja pottinn beint á helluna til þess að flýta fyrir, það er dæmt til þess að enda illa!

6

Búðingurinn er svo tilbúinn þegar hann festist á sleif. Setjið í hreina krukku og kælið. Búðingurinn þykknar og stífnar þegar hann kólnar.

Uppskrift frá Völlu hjá GRGS.is

Matreiðsla, , MatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir