Ótrúlega góður og fljótlegur pastaréttur sem slær í gegn hjá allri fjölskyldunni. Fullkominn í miðri viku þegar enginn nennir að elda! Ég er alltaf að reyna að finna góðar uppskriftir sem þó eru fljótlegar og einfaldar. Þessi er einmitt þannig, ég hugsa að það hafi tekið mig 20 mínútur að græja þennan rétt frá upphafi til enda. Hráefnin eru fá en útkoman er stórgóður pastaréttur sem allir í fjölskyldunni kunnu vel að meta. Það er vel hægt að nota tilbúinn kjúkling eða jafnvel rífa niður heilan kjúkling og setja út í sósuna. Þá mætti vel bæta við grænmeti eða hverju sem hugur ykkar girnist. Ég notaði Heinz pastasósu með tómat, grana padano og mascarpone en aðrar tegundir af sósu í sömu línu myndu einnig henta mjög vel.


Ótrúlega góður og fljótlegur pastaréttur sem slær í gegn hjá allri fjölskyldunni. Fullkominn í miðri viku þegar enginn nennir að elda! Ég er alltaf að reyna að finna góðar uppskriftir sem þó eru fljótlegar og einfaldar. Þessi er einmitt þannig, ég hugsa að það hafi tekið mig 20 mínútur að græja þennan rétt frá upphafi til enda. Hráefnin eru fá en útkoman er stórgóður pastaréttur sem allir í fjölskyldunni kunnu vel að meta. Það er vel hægt að nota tilbúinn kjúkling eða jafnvel rífa niður...
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.