Þetta er afar auðveld uppskrift, það þarf einungis að steikja fiskinn sem er velt upp úr blöndu af panko raspi og parmesan og guð hvað það er gott.
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Gott er að byrja á að gera hrásalatið og sósuna og láta ýsuflakið liggja á eldhúspappír á meðan til að ná mesta raka úr
Þegar salat og sósa er til skerið þá fiskinn í litla ferninga á stærð við gúllas bita
Setjið hveiti á einn disk, egg, rjóma, salt og pipar á annan og panko blandað með parmesan á þriðja og hrærið vel í eggjablöndunni
Byrjið á að velta fiskinum upp úr hveitinu og hristið allt umframhveiti af
Veltið næst upp úr eggjunum og hristið umframegg af
Veltið svo síðast upp úr Panko parmesan blöndunni
Raðið stykkjunum á disk við hlið hvor annars, en ekki ofan á hvort annað, og hitið góða olíu á pönnu
Steikið svo fiskinn á pönnuni í vel heitri olíunni þar til hann er orðin gylltur og fagur
Þegar hann er tekinn af pönnunni er gott að leggja hann á disk með eldhúspappa á til að olían leki í pappann
Skerið rauðkálið mjög smátt eða rífið það niður með rifjárni, skerið líka kínakálið mjög smátt ásamt lauknum
Blandið saman í skál
Rífið niður mexíkó ostinn, skerið tómatana í tvennt til þrennt og avókadóið í smáa bita
Bætið þessu saman við salatið en ekki hræra alveg strax
Takið næst ananasinn upp úr dósinni og skerið afar smátt og gott er að stappa hann smá með gafflinum, geymið safann í dósinni
Hellið nú ananasnum út í skálina, saltið, piprið og kreistið lime safann yfir allt
Hrærið nú öllu vel saman í skálinni og leggjið til hliðar
Hrærið saman majónesi og sýrðum rjóma
Bætið svo kryddum ásamt salti og pipar út í og hrærið vel
Bætið svo ananassafa, tabasco sósu og lime safanum út í og hrærið. Gott að geyma í ísskáp þar til hún er borin fram og þið megið líka bæði minnka eða auka við tabasco sósuna eftir því hversu sterka þið viljið hafa hana, mín var ekki neitt rífandi sterk
Takið eina mjúka tacos köku og hitið hana ef þið viljið örstutt í örbylgju (ég sleppti því þar sem þær eru svaka mjúkar)
Smyrjið svo góðu lagi af Philadelphia osti yfir kökuna
Þekjið hana næst með hrásalatinu og setjið fiskinn ofan á salatið
Brjótið smá ostanachos yfir og setjið hvítu sósuna að lokum ofan á
Gott er svo að hafa tabasco sósuna með til hliðar fyrir þá sem vilja enn meira sterkt
Ef þú elskar kóríander má hafa það líka með, en ég sleppi því alltaf enda ekki með kóríander genið
Uppskrift frá Maríu á paz.is