Hér er á ferðinni hið sívinsæla döðlugott með smá uppfærslu.

Uppskrift
Hráefni
500 gr döðlur frá Rapunzel (smátt saxaðar eða settar í matvinnsluvél)
200 gr smjör
80 gr púðursykur
100 gr sýróp
3 stk Yankee súkkulaðistykki (skorin í bita)
140 gr Rice Krispies
2 pokar lakkrískurl
350 gr suðusúkkulaði
Leiðbeiningar
1
Setjið döðlur, smjör, púðursykur, sýróp og Yankee í pott og hitið við miðlungshita. Hrærið vel í allan tímann og takið af hellunni þegar allt er orðið mjúkt og bráðið (um 10 mín).
2
Hellið lakkrískurli og Rice Krispies saman við og hrærið vel.
3
Setjið bökunarpappír í botn&hliðar á formi (um 20x30cm) og þjappið blöndunni vel þar í.
4
Frystið í um 15 mínútur.
5
Því næst er bræddu suðusúkkulaðinu hellt yfir og dreift jafnt út og fryst aftur í um 20-30 mínútur áður en skorið er í bita.
Gotterí og gersemar, Berglind Hreiðarsdóttir.
MatreiðslaBakstur, EftirréttirTegundÍslenskt
Hráefni
500 gr döðlur frá Rapunzel (smátt saxaðar eða settar í matvinnsluvél)
200 gr smjör
80 gr púðursykur
100 gr sýróp
3 stk Yankee súkkulaðistykki (skorin í bita)
140 gr Rice Krispies
2 pokar lakkrískurl
350 gr suðusúkkulaði