Girnileg súkkulaðikaka til að skella á grillið!

Uppskrift
Hráefni
175g Cadbury súkkulaði
175g smjör
3 stk egg
250g flórsykur
75g hveiti
40g Cadbury kakóduft
50g valhnetur
Leiðbeiningar
1
Bræðið smjörið og súkkulaðið saman á vægum hita, kælið lítillega. Þeytið eggin og flórsykurinn saman þar til blandan verður þykk og kremkennd. Blandið saman við súkkulaðismjörblönduna. Því næst blandið hveitinu rólega saman við ásamt valhnetunum.
2
Hellið kökublöndunni í kökuform og setjið á grillið í 20-25mínútur og berið fram eftir að kakan hefur náð að kólna lítillega.
MatreiðslaEftirréttir, Grillréttir
Hráefni
175g Cadbury súkkulaði
175g smjör
3 stk egg
250g flórsykur
75g hveiti
40g Cadbury kakóduft
50g valhnetur