Þessar rækjur eru dásamlegar, bæði djúsí og smá „spæsí“ um leið og hvítlaukssósan mildar þetta og fullkomnar síðan allt.


Þessar rækjur eru dásamlegar, bæði djúsí og smá „spæsí“ um leið og hvítlaukssósan mildar þetta og fullkomnar síðan allt.
Breyttu fjöldanum og hráefnin reiknast sjálfkrafa um.







Þetta silkimjúka perurisotto með hvítvíni, gráðosti og ristuðum valhnetum er algjört sælgæti og einstaklega skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnu risotto! Samspil sætu peranna, bragðmikils gráðostsins og ristuðu valhnetanna er alveg dásamlegt.

Poke skál er svo þægilegur hádegis- eða kvöldmatur þegar ykkur langar í eitthvað fljótlegt en gott. Hér nota ég Tilda Sticky Rice, chili risarækjur og ferskt meðlæti og toppa með japönsku majónesi og sriracha. Það er líka mjög gott að nota laxatartar í staðinn fyrir rækjurnar.

Sumarið er á næsta leið og þetta salat er æðislega ferskt og gott! Einnig er góð tilbreyting að grilla fisk, rækjur, humar og annað slíkt í bland við kjötið á næstunni.

einfaldasti partýréttur allra tíma, þetta er svo frábærlega gott og fljótlegt að þið verðið að gera þetta fyrir næsta partý eða veislu! Namm!

Mjúkur og mildur Philadelphia rjómaostur, sölt parmaskinka, stökkar pistasíuhnetur og heitt chili hunang skapa fullkomið jafnvægi á milli kremkennds, salts, sætu og smá hita. Aðferðin er einföld en útkoman ótrúlega falleg, litlar „skeiðar“ af rjómaosti sem gera bakkann strax meira spennandi og auðvelt að grípa í. Alveg dásamlegt með nýbökuðu baguette brauði og ísköldu rósavínsglasi.

Þegar maður vill alvöru stemmings mat með max bragði með lágmarks fyrirhöfn þá eru BBQ kjúklinga super nachos alltaf rétta svarið. Safaríkur kjúklingur í ljúffengri BBQ sósu, stökkt snakk, bráðinn ostur og ferskt jalapenó og kóríander ofan á. Þetta er svona réttur sem hverfur af disknum á nokkrum mínútum. Fullkomið um helgina, fyrir spilakvöldið, vinkonuboðið eða þegar þú vilt gera eitthvað extra gott án þess að stressa þig.