MöndluMæjóÞessa dagana hef ég mikið verið að borða salöt. Lykillinn að góðu salati er góð dressing, ég hef því mikið verið að prófa allskonar dressingar til að gera salötin skemmtileg og fjölbreytt. Ágæt þumalputtaregla í dressingu er að hafa fitugjafa og eitthvað súrt, sætt og salt…. og svo má hugamyndaflugið hlaupa af stað. Fitugjafinn þarf ekki endilega að vera olía heldur er hægt að leika sér með hnetur, möndlur, fræ eða lárperu. Ég var oft að gera allskonar sósur úr kasjúhnetum en þar sem möndlur eru basískari hafa þær aðeins verið að heilla mig meira en hnetur þessa dagana.Hollar lakkrís- & sítrónukúlurMér ber skylda að vara ykkur við þessum kúlum….. því þær eru einfaldlega ávanabindandi. Þetta eru þær allra bestu kúlur sem ég hef nokkurntíman smakkað en ég er líka veik fyrir lakkrís. Þessar urðu til í september í fyrra þegar ég var að reyna að brjóta ákveðið venjumynstur þar sem ég leitaði mikið í sykur á kvöldin. Þessar uppfylltu allar mínar óskir og fullnægðu sykurþörfinni 100%. Mögulega gerði ég þessar kúlur í hverri viku í …. segjum bara langt tímabil. Svo ef þú ert á sama stað og ég var og langar að finna hollari kost til að grípa í yfir netflix þá mæli ég með að prófa þessar.
Þær slógu líka í gegn í afmælinu mínu en ég ákvað að halda lítið sykurlaust afmæli fyrir nánustu fjölskyldu og bauð uppá súrdeigsbrauð & álegg, fullt af ávöxtum og nokkrar tegundir af svona hollustu nammikúlum. Það besta var mögulega að krakkarnir fengu að njóta allra veitinganna og öllum leið vel á eftir.Lífrænt hrákex úr hörfræjumSíðustu vikur hef ég verið glúteinlaus og að prófa mig áfram með hráfæði og alltíeinu poppaði upp minning um hrákex með hörfræjum. Mig minnir að ég hafi smakkað svona kex í fyrsta sinn á gamla Gló veitingastaðnum þegar þau buðu alltaf uppá hráfæðirétt svo seinna fór mamma að spreyta sig á að gera svona kex…. þetta var mögulega áður en ég fékk áhuga á eldamennsku haha.
Jæja það var kominn tími á að endurskappa þessa minningu í eldhúsinu mínu. Ég nota þurkofn til að gera hrákexið en það er líka hægt að nota venjulegan bakaraofn. Ég var svo heppin að eignast þurkofn eftir að góð vinkona mín hún Audrey tók til í geymslunni og spurði mig hvort ég vildi eiga þurkofninn sem hún notaði aldrei. Hingað til hefur hann aðallega verið tekinn fram á sumrin til að gera grænkálssnakk en hann hefur komið sér einstaklega vel síðasta mánuðinn og er mögulega í stanslausri notkun. Þetta kex er eitt af því sem kemur úr þurrkofninum í hverri viku núna.Bænda dögurður, spælegg á foccaccia brauði með salati og kryddjurtumÞegar ég var í Ameríkuflugum í sumar fékk ég nokkra rétti sem ég hef ætlað mér að reyna að leika eftir…Hrökkkex með karrý & epla kjúklingabaunasalatiGlútenlausa hrökkkexið frá Nairn‘s er alveg nýtt uppáhald hjá mér en það stökkt og létt í sér og passar ljómandi vel með allskonar góðum salötum og ostum. Það hentar sérlega vel þeim sem þurfa að sneiða hjá glúteni og óhætt er fyrir fólk með celiac sjúkdóm að njóta þess. Hrökkkexið er líka vegan og mig langaði að prófa að gera eitthvað djúsí vegan salat til að bera fram með því. Kjúklingabauna salatið kemur alveg ótrúlega á óvart og mæli eindregið með því að prófa þetta saman. Stórgott millimál eða sem léttur hádegismatur. Kjúklingur með parmaskinku og mozzarellaKjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni. Nammi!Hoisin risarækjupannaNúðlur með risarækjum og grænmeti í bragðmikilli hoisin sósu.Kalkúna klúbbsamlokaKlúbbsamloka er eitthvað sem allir elska! Kalkúnn, beikon og majónes borið fram með Stellu.Jalapeño „Poppers“Þegar maður tekur rjómaostafyllt jalapeño á næsta stig verður útkoman hreint út sagt stórkostleg! Að bæta við kjúkling gerir þetta matarmeira og þetta passar allt ótrúlega vel saman.Ítalskt skógarsveppa risotto með stökkum parmesankjúklingiÞessi réttur er algjörlega ómótstæðilegur og fullkominn fyrir alla sanna aðdáendur ítalskrar matargerðar. Að dúlla við þennan með góða tónlist og vínglas á hliðarlínunni er svo mikið helgardekur. Hann passar líka sérlega vel í matarboð og jafnvel saumaklúbbinn. Ég nota hérna fljótandi hvítlauk og basiliku sem mér finnst ótrúlega þægilegt, finnst nefnilega alveg óbærilega leiðinlegt að flysja hvítlauksgeira!
Þetta er ekki flókinn réttur í sjálfu sér en þetta eru nokkur skref og því tilvalið að gefa sér góðan tíma í eldhúsinu og njóta matseldarinnar.
Parmesanhjúpuð langaSælkerahjúpur úr majónesi og parmesanosti sem passar með öllum hvítum fisk. Einfalt og gott!Ofnbakað croissant með jarðarberjum og rjómaostiGómsætur réttur sem er tilvalinn í sunnudagsbrönsinn, saumaklúbbinn, vinahittinga eða jafnvel í babyshower. Ofnbakað croissant með jarðarberjum, rjómaosti og toppað með hlynsírópi. Ljúfur réttur sem er sniðugt að skella í daginn áður form og baka morguninn eftir. Passar vel með ísköldu Prosecco eða jafnvel mímósu.Heimagerð möndlumjólk með kanil og vanilluHver er besta jurtamjólkin? Tegundirnar eru orðnar margar sem hægt er að kaupa útí búð sem er frábært og margar hverjar mjög góðar. Að mínu mati er þó engin sem toppar heimagerða möndlumjólk og ef þú hefur gert hana einu sinni er mjög líklegt að þú gerir hana aftur… og aftur! Það besta við heimagerða möndlumjólk er að þú veist nákvæmlega hvað er í henni og þú getur bragðbætt hana eins og þú vilt. Hér er ein með kanil, vanillu og döðlu til að sæta. Hún er æðisleg ein og sér, útá grautinn, í smoothieinn eða til að nota á over nigh oats.Hnetusmjörsklattar með dökku súkkulaðiÞessir klattar eru alveg ótrúlega bragðgóðir, einfaldir og fljótlegir. Allt í einni skál, óþarfi að kæla deigið og baksturstíminn er stuttur. Þeir eru vegan og henta því öllum sem forðast dýraafurðir og þeim sem eru annað hvort með mjólkur- eða eggjaofnæmi. Bragðlausa kókosolían frá Rapunzel er ótrúlega fjölhæf og hentar jafn vel í bakstur, hvort sem er smákökur eða annað bakkelsi, hvet ykkur til að prófa hana næst þegar á að baka eitthvað gómsætt.Einföld og fljótleg döðlukaka með kanilÞessi kaka er alveg fullkomin sunnudagskaka sem gott er að skella í með stuttum fyrirvara. Það er mjög einfalt að laga deigið og það þarf ekkert að bíða eftir því að hún kólni alveg. Krökkunum finnst þessi alveg dásamleg sem og okkur fullorðna fólkinu. Kakan er án dýraafurða og henta vel þeim sem sneiða hjá þeim.
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Smelltu hér til að kynna þér skilmála síðunnar.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-functional
11 months
The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional".
cookielawinfo-checkbox-necessary
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
viewed_cookie_policy
11 months
The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.