Print Options:








Yankie ostakaka

Magn1 skammtur

Ótrúlega djúsí Yankie ostakaka.

Botn
 290 gr mulið Oreo (26 kökur)
 110 gr smjör
 2 tsk vanillusykur
Karamellusósa
 2 msk púðursykur
 40 gr smjör
 4 msk rjómi
Súkkulaði ganaché
 60 gr suðusúkkulaði (saxað)
 3 msk rjómi
Ostakakan sjálf
 500 gr Philadelphia rjómaostur (við stofuhita)
 90 gr sykur
 1 tsk vanillusykur
 4 gelatínblöð
 60 ml sjóðandi vatn (til að leysa upp gelatínið)
 400 ml þeyttur rjómi
 3 Yankie (skorin smátt) + 2 til skrauts (skorin stærra)
1

Byrjið á botninum. Blandið saman muldu Oreo, vanillusykri og bræddu smjöri. Klæðið botn (og hliðar ef vill) á 20-22 cm springformi og þjappið blöndunni á botninn og upp um ½ hliðanna. Setjið í kæli á meðan sósur og kakan sjálf er útbúin.

2

Gerið næst karamellusósuna með því að setja allt saman í pott. Suðan látin koma upp og þá lækkað í miðlungshita og hrært vel í um 7-9 mínútur. Hellið karamellunni í skál og látið standa á borðinu þar til þykknar.

3

Súkkulaði ganaché má útbúa næst og er hituðum rjómanum hellt yfir saxað súkkulaðið og látið standa í um 3 mínútur. Því næst er þessu hrært saman og látið standa líkt og karamellan þar til þykknar.

Ostakakan sjálf
4

Á meðan er kakan sjálf útbúin.

5

Þeytið saman rjómaost, sykur og vanillusykur þar til létt og ljóst.

6

Leggið gelatínblöð í kalt vatn í um 10 mínútur, setjið í sigti (til að losna við óþarfa vatn) og því næst í vel heitt vatnið (60 ml) til að leysa upp. Hrærið vel saman og tryggið að blandan sé uppleyst og leyfið því næst að ná stofuhita.

7

Skerið 3 Yankie smátt niður, losið bitana í sundur og leggið til hliðar.

8

Hellið gelatínblöndunni saman við rjómaostblönduna og hrærið aftur vel.

9

Því næst er þeytta rjómanum vafið saman við rjómaostablönduna og niðurskornu Yankie blandað saman við.

Samsetning
10

Sækið kældan Oreo botninn í kælinn.

11

Hellið ½ af ostakökublöndunni í formið og dreifið að sama skapi ½ af karamellusósunni og ½ af súkkulaðisósunni yfir. Takið grillpinna/tannstöngul og dragið sósurnar fram og tilbaka yfir kökuna til að gera marmaraáferð.

12

Endurtakið skref 2.

13

Plastið vel og setjið í kæli helst yfir nótt, amk í 3-4 klst og skreytið með niðurskornu Yankie áður en kakan er borin fram.