Print Options:








Vegan og sykurlaust „súkkulaði“ bananabrauð!

Magn1 skammtur

Dásamlegt Vegan og sykurlaust "súkkulaði" bananabrauð.

 1 3/4 bolli hveiti
 2 tsk lyftiduft
 1/2 tsk matarsódi
 1/2 bolli kókosflögur
 1/4 tsk salt
 4 msk Cadbury kakó
 3 stórir þroskaðir bananar
 8 döðlur ferskar
 1/2 bolli Oatly iKaffe haframjólk
 1 1/2 tsk vanilludropar
 1/3 bolli olía
1

Blandið öllum þurrefnum saman í skál. Steinhreinsið döðlurnar og stappið bananana og setjið útí skálin (án þess að blanda).

2

Blandið svo vökvanum saman í sér skál (eða bara í bollamálið) og hellið svo útí skálina. Hrærið öllu vel saman. Ath hér er best að nota hendurnar.

3

Setjið deigið í smurt form og bakið í 25mínútur í ofni á 175C á blæstri.

4

Hægt er að gera litlar sætar muffins en þá lækkar bökunartíminn í 15 mín.