Print Options:








VEGAN DeLuxe OSTAKAKA

Magn1 skammtur

Einföld og bragðgóð vegan ostakaka.

Botn:
 Heslihnetur 100g (Rapunzel)
 Möndlur 100g (Rapunzel)
 Cashew hnetur 100g (Rapunzel)
 Kókosflögur 50g (Rapunzel)
 1-2 dl púðursykur (má setja setja minna)
 2 dl kókosolía (Rapunzel)
 Appelsínu eða engifersúkkulaði ein plata (Rapunzel)
 1-2 msk Hlynsíróp (Rapunzel)
Fylling:
 2 pakkar, vegan ostur Violife
 1 dós kókosmjólk (Rapunzel) þykki massinn
 200 gr flórsykur
 1 tsk Vanilluduft (Rapunzel)
Ofan á:
 Kirsuberjasósa, fersk hindber, bláber og mynta
BOTN
1

Myljið allar hnetur, möndlur og kókosflögurnar í kaffikvörn og blandið púðursykri vel saman við og muldu appelsínusúkkulaði. Hitið kókosolíu þannig að hún verði fljótandi og hellið saman við ásamt hlynsírópinu. Hrærið vel. þrýstið blöndunni niður í fallega skál eða mót.

FYLLING
2

Hrærið í vél saman, vegan osti og flórsykri. Bætið í vanilludufti. Blandið síðan kókosmjolkinni saman við (ATH einungis massanum). Hellið þessari blöndu yfir botninn.

3

Kælið eða frystið.

4

Áður en kakan er borin fram eru margir möguleikar, m.a. er hægt er að sjóða kirsuber, jarðaber eða appelsínur í sykri og búa til sósu. Í þessu tilviki notaði ég kirsuberjasósu og hellti henni ofaná toppinn. Skreytið og bragðbætið með ferskum Driscolls bláberjum, hindberjum og myntu.

Nutrition Facts

Serving Size 6