Print Options:








Vegan bollur með þeyttum hafrarjóma og hlynsíróps gljáa

Magn1 skammtur

Þessar bollur eru ofur einfaldar í gerð og taka ekki langan tíma. Ég set bæði malaðar kardimommur og kardimommudropa í deigið og finnst það gera mjög mikið. Ég pensla þær síðan með hlynsírópi og þá kemur fallegur gljái á þær auk þess sem þær verða enn betri á bragðið.

 350g hveiti
 2 tsk þurrger
 3/4 tsk salt
 50g sykur
 1 tsk malaðar kardimommur
 1 tsk kardimommudropar
 2 dl volgt vatn
 1/2 dl jurtaolía
 Hlynsíróp til þess að pensla bollurnar
 1 ferna Oatly imat visp
 Sulta, flórsykur, vegan kókos smurálegg frá Rapunzel, súkkulaði glassúr, frostþurrkuð jarðarber
Kókossúkkulaði bolla
 Kókos smurálegg frá Rapunzel
 Súkkulaði glassúr á milli
 Vanillu rjómi
Berja bolla
 Frostþurrkuð jarðarber möluð og bætt í rjómann, magn eftir smekk
 Sulta með blönduðum berjum
 Súkkulaðiglassúr ofan á
 Saxað dökkt nóa kropp
Klassísk bolla
 Sulta með blönduðum berjum
 Þeyttur Oatly rjómi
 Flórsykur ofan á
1

Blandið saman þurrefnum í hrærivélaskál og festið krókinn á.

2

Setjið volgt vatn, kardimommudropa og olíu saman við og látið vélina vinna deigið í amk 5 mín.

3

Látið deigið hefast í skálinni í 40 mín.

4

Mótið bollur sem eru 55-60g að þyngd. Raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Hitið ofninn í 45°C og úðið vatni úr úðabrúsa yfir bollurnar og ofninn að innan. Hefið í ofninum í 30 mín.

5

Takið bollurnar út og hitið upp í 220°C. Setjið smá hlynsíróp í skál og penslið bollurnar.

6

Bakið bollurnar í 12-15 mín. Eru tilbúnar þegar þær eru orðnar fallega gylltar.

7

Kælið bollurnar á grind. Á meðan bollurnar kólna er hægt að útbúa það sem fer í þær.

8

Ég hef bæðið prófað að þeyta rjómann og setja hann í rjómasprautu og hvorutveggja kemur vel út.

9

Í þetta sinn prófaði ég að bæta 1 tsk af vanilludropum og 1 tsk af flórsykri saman við rjómann áður en ég þeytti hann og það kom mjög vel út og passar vel með bollunum.