Print Options:








Vatnsdeigsbollur með súkkulaðismjöri

Magn1 skammtur

Hér kemur ein undursamleg með Nusica súkkulaðismjöri, rjóma með söxuðu súkkulaði, ljósum mjólkursúkkulaðihjúp og heslihnetum, namm!

Vatnsdeigsbollur
 180 g smjör
 360 ml vatn
 200 g hveiti
 1 tsk. lyftiduft
 ¼ tsk. salt
 3-4 egg (160 g)
Fylling
 1 krukka súkkulaði Nusica (400 g)
 600 ml þeyttur rjómi
 120 g saxað Milka Milk súkkulaði
Súkkulaðihjúpur og skraut
 300 g brætt Milka Milk súkkulaði
 100 g saxaðar heslihnetur
Vatnsdeigsbollur
1

Hitið ofninn í 180°C.

2

Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.

3

Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.

4

Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.

5

Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.

6

Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.

7

Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið).

8

Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá falla þær.

Fylling
9

Smyrjið vænu lagi af súkkulaðismjöri á hverja bollu.

10

Vefjið söxuðu súkkulaði næst saman við rjómann, fyllið bollurnar og útbúið súkkulaðihjúpinn og skrautið.

Súkkulaðihjúpur og skraut
11

Smyrjið bræddu súkkulaði á hverja bollu og leyfið því aðeins að taka sig áður en þið stráið heslihnetunum yfir.

Nutrition Facts

Serving Size 15-18