fbpx

Vatnsdeigsbollur með hvítum Toblerone rjóma og brúnum Toblerone glassúr

Dásamlegar vatndeigsbollur með hvítu og brúnu Tobleroni, útkoman var æðisleg

Magn16 skammtarRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Bollur
 115 g smjör (best að vigta á vog)
 235 g vatn (vigtið það á vog)
 ½ tsk salt
 1 tsk sykur
 130 g hveiti
 4 stk egg
Hvítur Toblerone rjómi
 200 g Hvítt Toblerone
 100 g Brúnt Toblerone
 500 ml rjómi
 lyftiduft á hnífsoddi (má sleppa, en rjóminn heldur sér betur þannig)
Glassúr
 2 dl flórsykur (bæta við ef þess þarf)
 100 g brúnt Toblerone
 3 msk vatn
 klípa af salti

Leiðbeiningar

Bollur
1

Setjið vatn, salt, sykur og smjör saman í pott og hitið saman þar til byrjar að sjóða

2

Þegar suðan er komin upp setjið þá hveitið út í og hrærið stöðugt í með sleif þar til myndast eins og filma í botninn á pottinum og deigið er orðið vel blandað saman (alveg í eins og 1-3 mín)

3

Setjið svo deigið til hliðar í 3 mínútur (takið tímann og hafið það áfram í pottinum)

4

Bætið nú einu eggi út í og hrærið stöðugt. Fyrst bregður ykkur og haldið að deigið sé að skemmast því það fer allt í sundur en hrærið þar til það er samsett aftur. Hér notið þið bara áfram pottinn og sleif, ekki setja yfir í hrærivél.

5

Þá er að bæta eggi númer 2 í og þá gerist aftur það sama. Þegar deigið er samsett aftur þá er eggi 3 bætt í og haldið áfram svona þar til öll egginn 4 eru komin út í og deigið fallega slétt og kekkjalaust

6

Mér finnst best að sprauta deiginu á ofnskúffu með bökunarpappa. Þá tek ég plast sprautupoka og klippi frekar stórt gat á pokann en hef engann stút. Svo sprauta ég bollu á skúffuna og passa að hafa ágætt bil á milli næstu bollu. Ykkur gæti fundist eins og deigið sé lint og leki á plötunni en ekki hræðast því bollurnar lyftast og stækka mjög mikið í ofninum.

7

Dýfið svo puttanum í vatn og strjúkið yfir geirvörtuna sem myndast ofan á bolluni eða toppinn sem stendur upp þannig að bollan verði flöt ofan á

8

Penslið svo að lokum með hrærðu eggi (megið sleppa en gerir þær mjög flottar)

9

Bakist í 25-30 mínútur á 190 C° blæstri

10

Þegar bollurnar eru teknar út látið þær þá alveg í friði ofan á ofnskúffunni þar til þær eru orðnar kaldar þá falla þær ekki og halda lögun sinni

Hvítur Toblerone rjómi
11

Bræðið hvíta Tobleronið yfir vatnsbaði og leyfið því að kólna ögn án þess að það storkni

12

Þeytið rjómann ásamt lyftiduftinu og saxið brúna Tobleronið smátt niður

13

Hellið svo hvíta brædda Tobleroninu varlega í rjómann og hrærið varlega saman með sleikju

14

Setjið svo smátt saxaða Tobleronið saman við rjómann og hrærið varlega saman svo rjóminn falli ekki

Glassúr
15

Bræðið brúna Toblerone súkkulaðið yfir vatnsbaði

16

Setjið svo flórsykur og salt saman í skál og hrærið létt saman með skeið

17

Bætið svo brædda súkkulaðinu saman við og vatninu og hrærið vel saman þar til er orðið silkmjúkt og glansandi

Samsetning
18

Skerið bollur í sundur og setið sultu að eigin vali á botninn, rjómann svo ofan á

19

Dífið toppnum í glassúrinn og lokið bollunni og njótið

Auka punktar
20

Hér er mikilvægt að slumpa ekki eða breyta og bæta, það er alveg bannað. Farið alveg 100 % eftir uppskriftinni til að þær takist sem allra best hjá ykkur. Hér þurfið þið bara pott og sleif, ekki færa neitt yfir í hrærivél eins og er svo oft gert, það er alveg óþarfi.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…