Print Options:








Unaðslegt Dalgona Ískaffi

Magn1 skammtur

Dalgona iskaffi er það allra heitasta á internetinu um þessar mundir en það er ótrúlega einfalt að græja, tekur enga stund og er alveg ótrúlega gott.

 2 msk instant kaffi
 2 msk hrásykur, ég notaði Cristallino frá Rapunzel
 2 msk sjóðandi vatn
 Klakar
 Lífræn haframjólk frá Oatly
 Kakóduft ef vill
1

Setjið kaffi, sykur og vatn í hitaþolna skál og pískið vel þar til blandan verður eins og þéttur óbakaður marengs

2

Hálffyllið kaffiglas af klökum og hellið haframjólkinni yfir til rúmlega hálfs

3

Setjið kaffifroðuna yfir og dustið smá kakói yfir

4

Hrærið svo saman með skeið þegar þið eruð búin að dást að þessari fegurð!