Print Options:








Trefjaríkir og mettandi orkuboltar

Magn1 skammtur

Þessir orkuboltar eru hollir, metttandi, mátulega sætir og trefjaríkir í senn

 1 ½ dl haframjöl (ekki tröllahafrar)
 1 dl So Vegan So Fine kókóssmyrja
 ½ dl agavesíróp
 1 tsk vanilludropar
 1 dl möndlumjöl
 1 ½ dl kókoksmjöl og smá meira svo til að velta upp úr
 klípa af salti
1

Byrja á því að setja haframjöl í matvinnsluvél eða blandara og mala það smátt.

2

Næst er restin af innihaldsefnum sett saman við haframjölið í blandaranum eða matvinnsluvélinni.
Hafið í gangi þar til allt er vel blandað saman og klístrast saman, forðist samt að hafa allt of lengi í gangi þá verður þetta að olíu.

3

Takið nú maukið úr vélinni og formið 18 kúlur c.a á stærð við litla skopparabolta.

4

Veltið að lokum upp úr kókósmjöli og kælið áður en borið er fram.

5

Gott er að eiga þessa bolta/kúlur í frystir og taka svo út einn og einn út og láta standa í eins og 5 mínútur á borði.