Print Options:








Tortillu kaka með graskeri

Magn1 skammtur

Súper góður og einfaldur grænmetisréttur. Tortillum er staflað upp í köku og fylltar með ýmsu góðgæti eins og butternut squash, sveppum, lauk, Philadelphia rjómaosti og cheddar osti. Þetta er svo borið fram með guacamole með fetaosti.

 5 tortillur með grillrönd frá Mission
 1 butternut squash
 2 msk ólífuolía frá Filippo Berio
 ½ tsk chiliduft
 1 tsk cumin
 1 tsk salt
 ¼ tsk pipar
 Smjör
 250 g sveppir, skornir í smáa báta
 1 laukur, smátt skorinn
 2-3 hvítlauksrif, pressuð
 1 rjómaostur frá Philadelphia
 Cheddar ostur, rifinn
 100 g spínat
 1-2 msk sýrður rjómi
 Kóríander
Guacamole með fetaosti
 3 stór avókadó eða 5 lítil
 1 ½ dl stappaður fetakubbur
 Safi úr 1 lime
 Chiliflögur eða duft
 Salt & pipar
1

Afhýðið butternut squash, fjarlægið fræin úr miðjunni með skeið og skerið það í litla bita.

2

Hellið butternut squash bitunum í skál og blandið saman við ólífuolíu, chiliduft, cumin, salt og pipar.

3

Dreifið bitunum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 20 mínútur við 190°C.

4

Steikið sveppi og lauk upp úr smjöri. Kryddið með salti og pipar og blandið hvítlauknum saman við í lokin.

5

Smyrjið tortillu með rjómaosti, dreifið ¼ af sveppablöndunn og ¼ af butternut squash og dreifið svo spínatinu og cheddar ostinum yfir. Staflið annarri tortillu ofan á og endurtakið þetta þrisvar sinnum í viðbót.

6

Smyrjið toppinn á tortillakökunni með sýrðum rjóma og stráið restinni af cheddar ostinum yfir.

7

Bakið í ofni í 6-8 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

8

Skerið í sneiðar og berið fram með guacamole og kóríander.

Guacamole með fetaosti
9

Blandið öllu saman með töfrasprota eða stappið öllu saman.