Print Options:








Tómatsúpa

Magn1 skammtur

Þessi súpa er svo frábær því hún er ótrúlega bragðgóð, einföld og fljót í eldun, geymist vel og fer vel með budduna.

 700 ml vatn
 1 teskeið af grænmetiskraft frá Oscar
 1 stór dós kókosmjólk
 2 stórar dósir hakkaðir tómatar frá Hunts
 4 hvítlauksrif
 1/2 msk chili olía frá Filippo Berio
 Salt og Pipar
 3 dl pastaskrúfur frá Rapunzel
1

Hakkið tómatana úr dós með töfrasprota, matvinnsluvél eða blender

2

Setjið olíu og hvítlauk í pott og leyfið að malla þar til hitinn er kominn upp en passið að laukurinn brenni ekki

3

Þegar hitinn er kominn upp bætið þá við hökkuðum tómötum, vatni, grænmetis kraft og kókosmjólk

4

Setjið salt og pipar eftir smekk og leyfið að malla í 12 mínútur

5

Setjið pastaskrúfur út í og leyfið að malla í 8 - 10 mínútur í viðbót

6

Súpan má að sjálfsögðu malla lengur og verður bara betri með tímanum, en eftir þennan tíma er hún orðin fullelduð og má því bera hana fram

Nutrition Facts

Serving Size 4