Print Options:








Toblerone súkkulaði mús fylltar vatnsdeigsbollur

Magn1 skammtur

Toblerone músin er algjörlega himnesk í bollur.

Vatnsdeigsbollur
 125 g smjör
 1 msk sykur
 275 ml vatn
 170 g hveiti
 1 tsk lyftiduft
 ½ tsk salt
 4-5 egg
Toblerone súkkulaðimús
 4 egg
 ¾ dl sykur
 250 ml rjómi
 340 g Toblerone súkkulaði
 250 g rjómi
Bollur:
1

Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.

2

Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.

3

Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín.

4

Settu fjögur egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Settu seinasta eggið í skál og hrærðu það saman, settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli. Settu eins mikið af egginu út í deigð og hægt er, en fylgstu vel með eftirfarandi merkjum. Áferðin á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt.

5

Settu smjörpappír á ofnplötu og notaðu ísskeið eða 2 matskeiðar til að útbúa bollurnar. Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, um það bil 12 bollur á hverja plötu.

6

Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.

Súkkulaðimús:
7

Setjið egg og sykur í skál og þeytið vel saman þar til létt og loftmikið, ca. 3 mín.

8

Setjið rjóma í pott og hitið hann vel en ekki sjóða hann.

9

Hellið rjómanum út í eggjablönduna í mjórri bunu á meðan hrærivélin er í gangi á lágri stillingu.

10

Hellið blöndunni aftur í pottinn og hitið á meðal hita, passið að láta ekki sjóða, hrærið stanslaust í þar til blandan þykknar vel og verður gulari á litinn.

11

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og blandið því svo saman við eggjablönduna. Setjið inn í ísskáp og kælið í 1-2 klst.

12

Þeytið rjóma, setjið súkkulaði eggjablönduna út í rjómann, hrærið saman með k-inu eða með sleikju.

13

Setjið stórann opinn stjörnustút í sprautupoka, fyllið sprautupokann af súkkulaðimús, skerið bollurnar í tvennt og sprautið súkkulaðimús eftir smekk, setjið lokið á, skerið toblerone í grófa bita og stingið í músina, sigtið flórsykri yfir.