Print Options:








Toblerone Orange Twist súkkulaðimús

Magn1 skammtur

Súkkulaðimús er hinn fullkomni eftirréttur, hér er „Orange Twist“ útfærslu af þessari dásamlegu súkkulaðimús og almáttugur minn, þessi er rosaleg!

 280 g Toblerone Orange Twist
 80 g smjör
 2 egg
 300 ml stífþeyttur rjómi (+ um 250 ml til skrauts)
 Saxað Toblerone til skrauts
 Appelsínubörkur til skrauts
1

Bræðið gróft saxað Toblerone Orange Twist og smjör yfir vatnsbaði.

2

Þegar bráðið er blandan tekin af hitanum og leyft að standa í um 5 mínútur til að hitinn rjúki úr (hrært í af og til).

3

Eggin eru pískuð saman og bætt saman við í nokkrum skömmtum, hrært vel á milli.

4

Um 1/3 af rjómanum er þá blandað saman við súkkulaðiblönduna með sleif, síðan er restinni af rjómanum vafið saman við.

5

Skipt niður í 4-6 glös/skálar (fer eftir stærð) og kælt í lágmark 3 klst (einnig í lagi að plasta og geyma í kæli yfir nótt).

6

Skreytið að lokum með þeyttum rjóma, söxuðu Toblerone Orange Twist og appelsínuberki.

Nutrition Facts

Serving Size 4-6