Print Options:








Toblerone bollur

Magn1 skammtur

Hér er ég búin að fylla vatnsdeigsbollur með Toblerone súkkulaði og bláberjum og það er hreinlega þannig að allar uppskriftir sem innihalda Toblerone eru góðar!

Vatnsdeigsbollur
 180 g smjör
 360 ml vatn
 200 g hveiti
 1 tsk. lyftiduft
 ¼ tsk. salt
 3-4 egg (160 g)
Toblerone fylling
 600 ml þeyttur rjómi
 300 g bláber
 120 g saxað Toblerone
Súkkulaðiglassúr og skraut
 100 g brætt smjör
 210 g flórsykur
 2 msk. Cadbury bökunarkakó
 2 tsk. vanilludropar
 3 msk. uppáhellt kaffi
 Bláber
 Saxað Toblerone
Vatnsdeigsbollur
1

Hitið ofninn í 180°C.

2

Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.

3

Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.

4

Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.

5

Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.

6

Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.

7

Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið).

8

Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá falla þær.

Toblerone fylling
9

Vefjið bláberjum og Toblerone saman við þeytta rjómann og setjið á bollurnar.

Súkkulaðiglassúr og skraut
10

Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó og vanilludropa þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.

11

Smyrjið á bollurnar og skreytið með söxuðu Toblerone og bláberjum.

Nutrition Facts

Serving Size 15-18