fbpx

Toblerone bollakökur

Algjört nammi þessar!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Bollakökurnar
 2 bollar hveiti
 1 ½ bolli sykur
 6 msk bökunarkakó
 1 tsk salt
 1 tsk matarsódi
 3 egg
 2 tsk vanilludropar
 ¾ bolli olía
 1 bolli kalt vatn
 1 x 100gr stöng af Toblerone (saxað)
Kremið
 500gr flórsykur
 125gr smjör við stofuhita
 3 msk bökunarkakó
 2 stykki 100gr Toblerone (saxað)
 ½ bolli rjómi (hitaður)

Leiðbeiningar

Bollakökurnar
1

Sigtið saman hveiti, sykur, kakó, salt og matarsóda, leggið til hliðar.

2

Þeytið saman egg, olíu, vatn og vanilludropa þar til það verður létt í sér.

3

Bætið þurrefnunum rólega samanvið og skafið vel niður á milli.

4

Bætið Toblerone útí í lokin og hrærið samanvið.

5

Skiptið niður í um 20 bollakökuform og bakið við 180 gráður í 15-18 mínútur.

Kremið
6

Bræðið Toblerone yfir vatnsbaði og blandið rólega saman við hitaðan rjómann – kælið örlítið.

7

Hrærið saman flórsykur og smjör á lágum hraða þar til slétt og fellt (skafið niður á milli). Bætið bökunarkakói útí og hrærið áfram.

8

Blandið súkkulaðiblöndunni saman við flórsykursblönduna og hrærið í á meðan, skafið niður hliðarnar á milli. Aukið hraðann og hrærið á góðum krafti í um 5 mínútur eða þar til kremið verður létt og loftkennt.

9

Setjið í sprautupoka og notist við stóran stjörnustút við skreytinguna, stráið svo söxuðu Toblerone yfir og stingið Mini-Tobleronebita í hverja köku.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…