fbpx

Toblerone bollakökur

Hér eru á ferðinni einar bestu bollakökur sem ég hef bakað. Smakkendur gáfu henni allt að 10+ í einkunn svo mig grunar að þessi verði bökuð reglulega á þessu heimili.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Bollakökur
 80 g Toblerone
 80 g suðusúkkulaði
 40 g Cadbury bökunarkakó
 110 ml kaffi frá Te & Kaffi
 2 egg
 2 tsk vanilludropar
 120 g hveiti
 120 g sykur
 ½ tsk salt
 ½ tsk matarsódi
 6 msk matarolía frá Filippo Berio
Krem og skreyting
 130 g smjör við stofuhita
 3 msk Cadbury bökunarkakó
 400 g flórsykur
 100 g brætt Toblerone
 2 tsk vanilludropar
 4 msk kaffi frá Te & Kaffi
 12 stk Toblerone bitar og um 100 g af söxuðu Toblerone til skrauts

Leiðbeiningar

Bollakökur
1

Hitið ofninn 175°C.

2

Bræðið Toblerone og suðusúkkulaði saman og setjið í hrærivélarskál ásamt bökunarkakó og kaffi og blandið vel.

3

Pískið eggin saman og bætið vanilludropunum saman við þau og hellið öllu saman við súkkulaðiblönduna.

4

Setjið hveiti, sykur, salt og matarsóda í skál og blandið saman við súkkulaðiblönduna ásamt matarolíunni.

5

Skiptið niður í 12 bollakökuform og bakið í um 20 mínútur.

Krem og skreyting
6

Þeytið saman smjör og bökunarkakó og bætið flórsykrinum saman við á víxl við brætt Toblerone, vanilludropa og kaffi.

7

Skafið nokkrum sinnum niður á milli og setjið í sprautupoka þegar vel slétt og fellt.

8

Gott er að nota hringlaga stút um 1,5 cm í þvermál og fara tvo hringi.

9

Síðan er söxuðu Toblerone þrýst létt upp á neðri hlutann og einum bita af Toblerone stungið í toppinn til að skreyta.

Uppskrift frá Gotterí.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir