Print Options:








Toblerone bolla

Magn1 skammtur

Sælkerabolla með Toblerone.

Vatnsdeigsbollur
 80 g smjör
 2 dl vatn
 100 g hveiti
 Smá salt
 2-3 stk egg
Fylling
 2,5 dl þeyttur rjómi
 200 g brætt Toblerone hrært út í rjómann
 150 g saxað Toblerone hrært út í rjómann
Á toppinn
 200 g bráðið Toblerone
 100 g saxað Toblerone
Vatnsdeigsbollur
1

Setjið smjör og vatn í pott. Sjóðið þangað til smjörið bráðnar.

2

Setjið hveiti og salt út í og hrærið vel með sleif þangað til deigið hættir að festast við pottinn og sleifina. Kælið og setjið deigið í hrærivélaskál og bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli.

3

Notið tvær teskeiðar eða setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu.

4

Bakið við blástur 200°C í 25 mínútur.

Toblerone rjómi:
5

Blandið saman þeyttum rjóma, bræddu Toblerone og muldu Toblerone súkkulaði. Passið að kæla brædda Toblerone súkkulaðið aðeins áður.

Toblerone toppur:
6

Bræðið Toblerone súkkulaði yfir vatnsbaði og myljið einnig Toblerone til að skreyta.

Toblerone bolla:
7

Raðið bollunni saman.