Print Options:








Tikka masala grænmetisætunnar

Magn1 skammtur

Grænmetisréttur með indverskuívafi.

 olía til steikingar
 2-3 hvítlauksrif, smátt söxuð
 1/2 laukur, smátt saxaður
 1 1/2 msk garam masala
 1 tsk kóríanderkrydd
 1 tsk cumin (ekki kúmen)
 1 tsk paprikukrydd
 1 dós kjúklingabaunir frá Rapunzel400 gr
 1 blómkál
 1 dós saxaðir tómatar
 2 1/2 dl kókosmjólk, t.d frá Blue dragon
 2 dl vatn + 1 tsk grænmetiskraftur, t.d. frá Oscar
 salt og pipar
 ferskt kóríander (má sleppa)
1

Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, hvítlauk, garam masala, kóríander, kúmin og paprikukrydd í um 1-2 mínútur (hrærið stöðugt) eða þar til blandan er farin að gefa frá sér góðan ilm.

2

Skerið blómkálið niður og bætið út á pönnuna og steikið áfram í 2 mínútur.

3

Bætið þá tómötum, kókosmjólk, vatni og grænmetiskrafti saman við og látið malla í 15 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað.

4

Bætið kjúklingabaunum saman við og hitið í 3-4 mínútur til viðbótar.

5

Setjið í skál og berið fram með hrísgrjónum og etv. fersku kóríander.