Print Options:








Þorskhnakkar með stökkum parmesanhjúp

Magn1 skammtur

Fiskur, smælki, smjörsteiktur aspas og köld Tabasco sósa, namm!

Fiskur
 Um 800 g þorskhnakkar
 60 g panko rasp
 50 g rifinn parmesan
 60 g smjör við stofuhita
 1 tsk. Tabasco Original Sauce
 1 msk. söxuð steinselja
 3 rifin hvítlauksrif
 Safi úr ½ sítrónu
 Salt, pipar, hvítlauksduft
Kartöflur
 Um 600 g smælki
 Ólífuolía
 Salt, pipar, hvítlauksduft
Smjörsteiktur aspas
 1 ferskt aspasbúnt
 60 g smjör
 Salt, pipar, hvítlauksduft eftir smekk
Köld Tabasco sósa
 1 dós sýrður rjómi (180g)
 Safi af ½ sítrónu
 1 tsk. salt
 1 tsk. paprikuduft
 1 tsk. Tabasco Original Sauce
Fiskur
1

Skolið og þerrið fiskinn. Smyrjið eldfast mót og raðið þorskhnökkunum í mótið (ég skar hvert flak niður í 2 bita). Kryddið vel með salti og pipar.

2

Blandið raspi, parmesan, smjöri, Tabasco, steinselju, hvítlauk og sítrónusafa saman í skál. Best er að hnoða saman í höndunum og krydda til með salti, pipar og hvítlauksdufti. Ég notaði um 1 tsk. af hvítlauksdufti og salti og eins og ½ tsk. af pipar.

3

Setjið vel af parmesanblöndu yfir hvert fiskstykki.

4

Bakið við 200°C í 12-15 mínútur (eftir þykkt fiskbitanna).

Kartöflur
5

Hitið ofninn í 200°C.

6

Skerið kartöflurnar til helminga og veltið upp úr 2-3 msk. af ólífuolíu.

7

Kryddið með um 1.tsk af salti og hvítlauksdufti og um ½ tsk. af pipar.

8

Bakið í um 30 mínútur eða þar til kartöflurnar mýkjast.

9

Smjörsteikur aspas

10

Bræðið smjörið við meðalháan hita og veltið aspasnum upp úr því og snúið reglulega.

11

Kryddið eftir smekk og leyfið að malla þar til aspasinn mýkist.

Annað
12

Þá er gott að byrja á því að útbúa hjúpinn á fiskinn og leggja til hliðar á meðan þið undirbúið kartöflurnar og setjið þær í ofninn.

13

Þegar kartöflurnar eru komnar í ofninn passar vel að útbúa köldu sósuna, setja hjúpinn á fiskinn og koma aspasnum í eldun.

14

Þegar kartöflurnar hafa verið í ofninum í um 15 mínútur má bæta fisknum við og baka hvorutveggja áfram í um 15 mínútur.

15

Á meðan mallar aspasinn og gott er að leggja á borðið og ganga frá því sem notað var við eldamennskuna.