Print Options:

Tequila risarækja með hvítlauk og kóríander

Magn1 skammtur

Einfaldasti réttur í heimi og með þeim betri. Tequila færir risarækjurnar á annað plan og hvítlaukurinn og kóríander gera gott enn betra!

 5 hvítlauksrif, söxuð smátt
 600 g risarækjur
 120 ml tequila
 1/2 búnt ferskt kóríander
 salt og pipar
1

Bræðið smjör á pönnu og bætið hvítlauk saman við þar til gylltur á lit.

2

Setjið risarækjurnar saman við og steikið í 2-3 mínútur.

3

Hellið tequila saman við og kryddið með kóríander, salti og pipar. Einnig er gott að bæta við chilíflögum. Látið sjóða í 2 mínútur.

4

Setjið á disk og berið fram með fersku kóríander, salti og pipar.

Nutrition Facts

0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki

Serving size