Print Options:








Syndsamlega góður lax með sætu chilímauki

Magn1 skammtur

Góður og hollur fiskréttur.

 7-800 g laxaflak, beinhreinsað
 3 msk soyasósa, t.d. frá Blue dragon
 1 msk engifer, rifið
 Sætt chilímauk
 4 msk olífuolía
 3 tsk hvítlauksmauk (minched garlic), t.d. frá Blue dragon
 3 skarlottulaukar, saxaðir
 3 msk rauðar piparflögur (eða cayennepipar)
 3 msk fish sauce
 2 msk hrásykur (eða hunang)
 1 ½ msk safi úr límónu
 2 msk vatn
1

Hitið olíu á pönnu við meðalhita. Bætið lauknum og hvítlauksmauki út á pönnuna og léttsteikið í um 2 mínútur. Setjið í matvinnsluvél eða mortel og blandið vel saman. Bætið piparflögunum, fiskisósunni, sykri, límónusafa og vatni saman við og blandið þar til þetta er orðið að mauki. Setjið maukið síðan á pönnuna og hitið í nokkrar mínútur. Ef maukið er of þykkt bætið smá vatni saman við.

2

Látið maukið í grunnt fat og bætið soyasósu og rifnu engifer saman við. Leggið laxinn á marineringuna og geymið í kæli í 30 mínútur eða lengur.

3

Leggið álpappír á ofnplötu og smyrjið lauslega með ólífuolíu. Leggið fiskinn á álpappírinn og setjið smá af marineringunni yfir hann. Leggið álpappír lauslega yfir fiskinn og setjið inn í 180°c heitan ofn í 15 mínútur. Fjarlægið þá álpappírinn, stillið á grill og eldið í um 3 mínútur til viðbótar.