Ég hafði aldrei prófað að nota banana sem sætu í granóla fyrr en Tobba Marínós kom með granólað sitt á markaðinn. Ég segi bara takk fyrir þá hugmynd því við á mínu heimili erum bara ferlega hrifin af því.
Hér er heimagert granóla í anda Granólabarsins “sem mamma ykkar vill að þið borðið”. Enginn sykur, ekkert síróp, bara strangheiðarleg lífræn hráefni og bragðlaukarnir segja “ekki hætta að narta í þetta eins og snakk”.
Saxið hneturnar og blandið öllum þurrefnum vel saman.
Stappið banana og bætið útí ásamt kókosolíunni og kókos-& möndlusmjörinu.
Blandið vel saman og dreifið svo út á bökunarplötu, hafið endilega bökunarpappír undir.
Bakið í ofni í 20 mínútur á 185°C, hrærið aðeins í granólanu á plötunni eftir 10 mínútur í ofninum.
Leyfið granólanu að kólna alveg við stofuhita í nokkra tíma áður en það er sett í loftþétt ílát.
Mæli með að græja granólað að kvöldi til og leyfa því að standa á borði yfir nóttina. Þú munt vakna við góða lykt í eldhúsinu og tilbúið granóla í morgunmat. Verði ykkur að góðu.
0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki