Print Options:








Svínakótilettur með kanilrjómasósu og möndlukartöflum

Magn1 skammtur

Svínakótilettur með hættulega góðri sósu með kanil og möndlukartöflum.

 10 stk beinlausar svínakótilettur (hver ca 120g)
 2 dl Wesson olía
 3 msk Italian Seasoning krydd
 3 msk Garlic Pepper
 150 g hakkaður laukur
 1 stk kanilstöng
 0,5 dl hvítt balsamikedik
 1 ltr vatn
 45 ml OSCAR Villibráðakraftur fljótandi,
 óblandaður
 140 g OSCAR Sveppasúpupaste
 2 dl rjómi
 1200 g kartöflur
 50 g möndlur án hýðis
 25 g Oscar Villibráðakraftur, duft
1

Kótiletturnar eru brúnaðar á pönnu og settar í eldfast mót. Þær eru penslaðar með kryddi og hvítlaukspipar sem hefur verið blandað í olíu. Eldfasta mótið er sett inn í ofn og kótiletturnar steiktar í ofni þar til þær eru tilbúnar.

2

Laukurinn er steiktur á pönnu, bætið balsamkediki út í og er blandan látin sjóða. Þegar blandan hefur náð suðu er vatni, kanil, fljótandi villibráðakrafti og sveppasúpupaste bætt út í. Hrærið þar til suðu er náð og bætið að lokum rjóma út í.

3

Bakið kartöflurnar í ofni þar til þær eru tilbúnar. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar, eru möndlurnar muldar og blandað við villibráðakraft. Möndlublöndunni er dreift yfir kartöflurnar áður en rétturinn er borinn fram.

Nutrition Facts

Serving Size 10