Print Options:








Svartbaunaborgari með fetaosti og sriracha jógúrtsósu

Magn1 skammtur

Sælkeraborgari fyrir grænkera.

 2 dósir svartar baunir
 1 msk ólífuolía
 1/2 paprika, smátt skorin
 1/2 laukur, smátt saxaður
 3 hvítlauksrif, pressuð
 1 1/2 tsk cumin
 1 tsk chilí duft
 1/2 tsk hvítlauksduft
 1/4 tsk reykt paprika
 1/2 bolli brauðrasp
 1/2 bolli fetaostur
 2 egg
 1 msk Heinz worcestershire sósa
 2 msk tómat- eða bbq sósa
 salt og pipar
Sriracha jógúrtsósa
 1 dós hrein jógúrt
 1-2 msk Tabasco sriracha sósa
 1-2 msk sítrónusafi
 1 hvítlauksrif, pressað
 salt og pipar
1

Hellið vökvanum frá baununum og leggið á ofnplötu með smjörpappír. Dreyfið vel úr og eldið við 150°c í 15 mínútur.

2

Setjið olíu í pott og steikið lauk, hvítlauk og papriku við vægan hita. Setjið í skál ásamt hinum hráefnunum og bætið að lokum svörtu baunum saman við. Stappið baunirnar lítillega og mótið í buff.

3

Ef deigið er of blautt bætið þá smá hveiti saman við.

4

Grillið eða látið í 190°c heitan ofn í 10 mínútur á hvorri hlið.

Sriracha jógúrtsósa
5

Blandið öllu saman í skál og geymið í kæli

Nutrition Facts

Serving Size 4-6