Print Options:








Súrdeigspizza með salsiccia og chilihunangi

Magn1 skammtur

Ekkert toppar góða heimagerða súrdeigspizzu með fullkominni blöndu af krydduðu, safaríku áleggi og stökkum botni. Þessi pizza sameinar djúpan bragðheim súrdeigsins, bragðmikla ítalska grillpylsu og sæta, kryddaða hlið chilihunangsins – ómótstæðileg blanda fyrir bragðlaukana.

 2 stk SúrdeigsdeigKeypt út í búð
 200 g Salsiccia grillpylsaFæst frosin í Hagkaup, Krónunni og Melabúðinni
 200 ml Pizzasósa
 200 g Mozzarella rifinn
 1 stk Rauðlaukur, lítill
 1 stk Rósmarín stilkur
 25 g Klettasalat
 Parmesan, eftir smekk
 Chilihunang, eftir smekk Sjá uppskrift neðar
 150 ml Hunang
 15 g Rautt chili
 ½ stk Hvítlaukur, lítið rif
1

Takið pizzadeigið úr kæli amk 2 klst fyrir eldun.

2

Skerið utan af salsiccia pylsunum og losið kjötið í sundur. Steikið á heitri pönnu þar til kjötið er fulleldað. Geymið á disk til hliðar

3

Stillið ofninn á hæsta hita (á pizza stillingu ef það er í boði).

4

Sneiðið rauðlauk í þunnar sneiðar eftir smekk. Saxið rósmarín gróflega.

5

Setjið bökunarplötu inn í ofn svo hún hitni vel á meðan unnið er í botninum. Hafið bökunarpappír kláran til að vinna deigið á.

6

Setjið smá hveiti á hendurnar og notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 28 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski. Þannig er gasinu í deiginu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist betur.

7

Raðið sósu, salsiccia, osti, rósmarín og rauðlauk á pizzuna.

8

Takið heita ofnplötuna úr ofninum (farið varlega) og dragið pizzzuna á ofnpappírnum á heita plötuna. Bakið í neðstu grind í ofni í 12-15 mín eða þar til pizzan er orðin fallega gyllt.

9

Toppið pizzuna með klettasalati, rifnum parmesan og chilihunangi eftir smekk.

10

Sneiðið chili í þunnar sneiðar og pressið hvítlauksrif. Setjið hunang, chili og hvítlauk í lítinn pott og stillið á miðlungshita.

11

Hrærið í blöndunni þar til hunangið er við það að fara að sjóða og lækkið þá hitann í lægstu stillingu og látið vera í um 20 mín.

12

Takið af hitanum og hellið yfir í krukku þegar hunangi er búið að kólna svolítið. Hunangið geymist í ísskáp í allt að mánuð en takið úr kæli og látið standa við stofuhita fyrir notkun eða velgið aftur upp.

13

Njóttu með góðu rauðvíni.