Sumarleg vanilluterta með möndlukremi og jarðarberjum

Þessi vanilluterta er sannkallaður sumardraumur – svo mjúk með djúpu vanillubragði og dásamlegu silkimjúku möndlukremi. Þessi kaka hentar vel í veislur, afmæli eða bara þegar þið viljið fagna sumrinu með einhverju ljúffengu – hér er sumar í hverjum bita, ég lofa!

Magn1 skammturRating0.0

Uppskrift

Hráefni

Terta
 2,50 bollar hveiti
 0,50 bolli maízena mjöl
 1,50 bollar sykur
 0,50 bolli rapadura hrásykur frá Rapunzel
 3 tsk lyftiduft
 1 tsk matarsódi
 1,50 tsk salt
 0,50 tsk vanilluduft frá Rapunzel
 1,50 bollar súrmjólk
 3 stk egg
 1 bolli jurtaolía
 3 tsk vanilludropar
 0,50 bolli heitt vatn
Möndlukrem
 120 g vegan smjör eða smjörlíki
 120 g mjúkt smjör
 2 bollar flórsykur
 50 g Möndlu-núggat smyrja frá Rapunzel
 0,25 tsk möndludropar
 1 tsk vanilludropar
 250 g jarðarber + auka til skrauts
 Aðrar tegundir af berjum að auki ef vill

Leiðbeiningar

Tertan
1

Hitið ofninn í 175° blástur og smyrjið þrjú 23 cm kökuform.

2

Setjið þurrefni í skál og hrærið í með písk. Hellið súrmjólk, eggjum, olíu og vanilludropum saman við og hrærið í með písk. Bætið við heitu vatninu og hrærið saman. 

3

Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í 30 mín eða þar til prjóni sem stungið er í miðjuna á botnunum kemur hreinn upp.

Kremið
4

Á meðan botnarnir kólna er gott að huga að kreminu. Þeytið saman smjör og vegan smjör þar til. Einnig er hægt að nota einungis aðra hvora tegundina ef þið kjósið. Setjið möndlu-núggat smyrjuna saman við og þeytið áfram eða þar til blandan er orðin mjög létt í sér.

Setjið flórsykurinn og dropana saman við og þeytið í alveg 5-7 mín. Eða þar til kremið er orðið létt og ljóst.

Samsetning
5

Saxið jarðarberin og setjið til hliðar. Setjið einn botn á kökudisk og smyrjið með kremi. Setjið söxuð jarðarber ofan á kremið og leggið annan botn ofan á. Endurtakið.

6

Setjið síðasta botninn yfir og smyrjið þunnu lagi af kremi á hliðarnar en aðeins þykkara ofan á kökuna. Skreytið með blönduðum berjum og blómum ef vill.

MatreiðslaTegundInniheldur
SharePostSave

Hráefni

Terta
 2,50 bollar hveiti
 0,50 bolli maízena mjöl
 1,50 bollar sykur
 0,50 bolli rapadura hrásykur frá Rapunzel
 3 tsk lyftiduft
 1 tsk matarsódi
 1,50 tsk salt
 0,50 tsk vanilluduft frá Rapunzel
 1,50 bollar súrmjólk
 3 stk egg
 1 bolli jurtaolía
 3 tsk vanilludropar
 0,50 bolli heitt vatn
Möndlukrem
 120 g vegan smjör eða smjörlíki
 120 g mjúkt smjör
 2 bollar flórsykur
 50 g Möndlu-núggat smyrja frá Rapunzel
 0,25 tsk möndludropar
 1 tsk vanilludropar
 250 g jarðarber + auka til skrauts
 Aðrar tegundir af berjum að auki ef vill
Sumarleg vanilluterta með möndlukremi og jarðarberjum

Aðrar spennandi uppskriftir