Print Options:








Súkkulaðikaka með hvítu Toblerone kremi

Magn1 skammtur

Ómótstæðileg kaka með hvítu Toblerone kremi.

 200 g smjör, brætt
 4 egg
 150 g sykur
 100 g hrásykur
 1 1/2 dl rjómi
 2 tsk vanilludropar
 1 msk kaffi
 200 g hveiti
 80 g kakó
 2 tsk lyftiduft
 1/2 tsk salt
Hvítt Toblerone krem
 200 g hvítt Toblerone
 2,5 dl flórsykur
 2,5 dl mjúkt smjör
1

Bræðið smjör og setjið til hliðar.

2

Hrærið egg og sykur saman í 4-5 mínútur eða þar til blandan er orðin létt og ljós.

3

Setjið rjóma, bráðið smjör, vanilludropa og kaffi saman við.

4

Blandið þurrefnum saman í skál og blandið saman. Hellið saman við deigið og hrærið saman.

5

Smyrjið form og hellið deiginu og setjið í 175°c heitan ofn í 25 mínútur eða þar til kakan er elduð í gegn.

6

Takið kökuna úr ofninum og látið kólna.

7

Skerið kökuna í tvennt og smyrjið kreminu milli botnanna. Leggið efri hlutann yfir þann neðri og smyrjið kremi á þann efri líka og smyrjið kreminu ofan á hann og á hliðarnar.

Hvítt Toblerone krem
8

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og kælið. Hrærið smjör og flórsykur vel saman þar til orðið létt og ljóst.

9

Hellið kælda súkkulaðinu saman við og hrærið stuttlega þar til súkkulaðið hefur blandast kreminu.