Print Options:








Súkkulaði- og kókoskaka án hveitis

Magn1 skammtur

Æðisleg kaka með kókos og súkkulaði.

 12 döðlur
 1 dl vatn
 5 eggjahvítur
 100 g döðlur, saxaðar
 50 g dökkt súkkulaði frá Rapunzel
 1 1/2 dl kókosmjöl
 100 g dökkt súkkulaði frá Rapunzel (ég notaði með appelsínubragði)
 2 msk kókosolía frá Rapunzel
 1 /2 dl kókosmjólk frá Blue Dragon
1

Hitið 12 döðlur og 1 dl vatni saman í potti. Látið malla við vægan hita þar til döðlurnar eru orðnar að mauki. Kælið.

2

Stífþeytið eggjahvíturnar. Saxið 50g af súkkulaði, 100 g af döðlum og setjið saman við eggjahvíturnar ásamt döðlumauki og kókosmjöli. Blandið varlega saman við með sleif.

3

Látið í um 20 cm form og bakið við 175°c í 20 mínútur. Takið úr ofni og kælið.

4

Hitið 100 g súkkulaði, kókosolíu og kókosmjólk saman yfir vatnsbaði. Látið yfir kökuna.

5

Skreytið kökuna með ferskum berjum og berið fram með rjóma.

Nutrition Facts

Serving Size 6-8