Print Options:








Suðræn vefja

Magn1 skammtur

Hér á ferðinni eru tvær dúndurgóðar vefjur sem taka mjög skamman tíma að útbúa!

 6 stk (1 pk) Mission Wraps vefjur með grillrönd
 900 g kjúklingabringur (3-4 stk) t.d Rose Poultry
 8-10 msk Sweet BBQ sósa frá Heinz
 1/3 ferskur ananas
 ½ mangó
 Íssalat
 Rauðlaukur
 Vorlaukur
 Kóríander
 Rifinn ostur
 Salt, pipar, ólífuolía
1

Skerið grænmeti og ávexti í litla bita, rífið ost og leggið til hliðar.

2

Skerið kjúklingabringurnar í litla bita, steikið upp úr ólífuolíu og kryddið til með salti og pipar. Þegar bitarnir eru steiktir í gegn er pannan tekin af hellunni og BBQ sósunni hrært saman við.

3

Gerið vefjurnar tilbúnar og setjið vel af kjúklingablöndu, rifnum osti og grænmeti og ávöxtum á hverja köku og vefjið upp.

Nutrition Facts

Serving Size 4