Print Options:








Stökkur nachos kjúklingaborgari

Magn1 skammtur

Geggjaður kjúklingaborgari

 700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
 60 g hveiti
 60 g nachos flögur, t.d. frá Mission
 40 g brauðrasp,mæli með Panko
 2 tsk chilikrydd
 1 tsk cumin (ath ekki kúmen)
 1 tsk salt
 1/2 tsk paprikukrydd
 1/2 tsk hvítlauksduft
 pipar
 1 egg
 60 ml safi úr jalapeno krukku
 olía
 salt og pipar
Annað
 Hamborgararbrauð
 Guagamole
 Rauðlaukur
 Salat
 Heinz mayonnaise
1

Setjið hveiti í eina skál.

2

Látið egg og safa frá jalapeno í aðra skál og hrærið saman.

3

Í þá þriðju setjið þið muldar nachos flögur, brauðrasp, chilíkrydd, cumin, salt, paprikukrydd, hvítlauksduft og pipar og blandið vel saman.

4

Dýfið kjúklingalæri fyrst í hveiti, þá eggjablönduna og að lokum í nachosmulninginn. Setjið á bökunarplötu með smjörpappir og dreypið smá af ólífuolíu yfir kjúklinginn. Endurtakið með hin kjúklingalærin.

5

Eldið í 210°c heitum ofni i 25-30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.

6

Hitið hamborgarabrauð og smyrjið með ríflegu magni af majonesi. Setjið meðlæti að eigin vali á brauðið og endið með kjúklinginum.