Print Options:








Stökkar kjötbollur í Hoi Sin sósu

Magn1 skammtur

Þessar bollur eru frábær partýmatur og geta í raun verið einar og sér, kaldar á smáréttarhlaðborði eða með hrísgrjónum sem heit máltíð.

Kjötbollur
 1 kg gott nautahakk
 1 egg (pískað)
 1 pakki Ritz kex
 ½ poki púrrulaukssúpa (duftið)
 ½ smátt saxaður rauðlaukur
 2 rifin hvítlauksrif
 1 msk. ferskt kóríander (saxað)
 Olía til steikingar
 1 ½ krukka Hoi Sin sósa frá Blue Dragon (375 ml í heildina)
 Soðin hrísgrjón
 Jógúrtsósa (sjá uppskrift)
Jógúrtsósa
 350 g grísk jógúrt
 4 msk. mjólk
 ½ lime (safinn)
 2 rifin hvítlauksrif
 2 msk. kóríander (saxað)
 Salt og pipar eftir smekk
Kjötbollur
1

Setjið Ritz kex í blandarann og maukið alveg niður í fína mylsnu.

2

Blandið þá hakki, eggi, Ritz kexi, súpudufti, rauðlauk, hvítlauk og kóríander saman í skál og hnoðið vel saman.

3

Rúllið í litlar, þéttar kjötbollur og steikið upp úr vel af olíu þar til allar hliðar hafa brúnast.

4

Hellið Hoi Sin sósunni yfir og eldið áfram í 180° heitum ofni í um 15 mínútur (gott er að útbúa jógúrtsósuna á meðan).

5

Gott er að bera bollurnar fram með hrísgrjónum og jógúrtsósu.

Jógúrtsósa
6

Hrærið öllu saman í skál og berið fram með kjötbollunum.