Girnilegur risarækjuréttur með spicy bragði.
Hitið olíu á wok pönnu og steikið lauk og hvítlauk í um 1 mínútu og hrærið stöðugt á meðan.
Bætið hvítkáli saman við og steikið áfram.
Setjið rækjur, tómatpúrru og chilímauk saman við og steikið. Smakkið og bætið við chilímauki ef þið viljið hafa þetta bragðmeira.
Léttþeytið 2 egg og hellið út á pönnuna. Hrærið öllu saman þar til eggin eru næstum fullelduð.
Bætið hrísgrjónum saman við og hitið. Saltið og piprið.
Stráið kóríander og chilí yfir allt og berið fram með límónubátum.