Print Options:








Spínat og ostafylltar smjördeigsbollur

Magn1 skammtur

Þessar spínat og ostafylltu smjördeigsbollur eru hreint út sagt tryllt góðar!

 6 smjördeigs blöð
 2 msk steikingar olía
 100 g sveppir
 4 sneiðar skinka
 2 hvítlauksgeirar
 200 g spínat
 Salt og pipar
 ¼ tsk þurrkað oreganó
 ¼ tsk þurrkað basil
 200 g Philadelphia með graslauk og púrrulauk
 150 g fetaostur (án olíu)
 ½ dl rifinn parmesanostur
 1 egg
1

Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.

2

Takið ál muffinsbakka og klæðið hvert hólf með smjörpappír.

3

Skerið hvert smjördeigis blaðið í tvennt og rúllið hverjum hluta létt út. Setjið í muffinsformið, þrýstið deiginu vel ofan í hornin.

4

Skerið sveppina og skinkuna niður í bita og steikið á pönnu upp úr olíu. Skerið hvítlaukinn niður og bætið út á pönnuna. Skolið spínatið og þurrkið, bætið því út á pönnuna. Steikið þar til sveppirnir eru allir mjúkir í gegn og spínatið eldað. Kryddið með salt+pipar eftir smekk og svo með basil+oreganó.

5

Setjið rjómaostinn út á pönnuna, bræðið hann saman við og blandið öllu vel saman.

6

Slökkvið undir pönnunni. Hellið olíunni af fetaostinum (óþarfi að henda henni samt) og setjið út á pönnuna, rífið parmesan ost út á og blandið öllu saman.

7

Setjið spínatfyllinguna í smjördeigið og lokið deiginu eins og á myndunum, gott að klípa hornin aðeins saman. Hrærið eitt egg og penslið yfir deigið. Bakið í 20 mín.