Print Options:








Spicy Tófú spjót

Magn1 skammtur

Hér kemur æðisleg grill uppskrift, Tófú spjót og sósa með.

 2 tófú kubba
 3 papríkur
 2 rauðlaukar
Marinering
 1/2 dl Pataks Madras Spice paste
 2 dl oatly hrein yogurt
 1 msk soja sósa
 1 tsk laukduft
 1/2 dl olia
Raita:
 3 dl oatly hrein jógúrt
 Safi úr hálfri sítrónu
 1 1/2 hvítlauksrif
 1 tsk cumin
 1 msk söxuð fersk mynta
 Hnífsoddur salt
1

Takið tófúið úr bréfinu og hellið vökvanum af. Þerrið vel með viskustykki eða eldhúsbréfi, hér má pressa tófúið ef maður nennir.

2

Skerið tófúið í kubba.

3

Blandið saman hráefnum í marineringuna. Raðið tófúinu í fat og þekjið með ca 2/3 af marineringu og leyfið að liggja í marineringunni í ca 30 min (eða lengur, jafnvel daginn áður).

4

Skerið papríkur og rauðlauk í bita og blandið saman við rest af marineringunni.

5

Raðið tófúi og grænmeti á grillprjón (bleytið prjóninn áður ef þið notið tréprjóna)

6

Grillið spjótin!

Raita
7

Blanda!