Print Options:








S’mores kaka

Magn1 skammtur

Þessi kaka er vægast sagt dásamleg. Það má ýmist grilla hana á útigrilli eða baka hana í ofni.

Botn
 120 g smjör við stofuhita
 120 g púðursykur
 2 egg
 2 tsk. vanilludropar
 200 g hveiti
 1 tsk. matarsódi
 ¼ tsk. salt
 80 g súkkulaðidropar (dökkir)
 80 g saxað Marabou Daim Bites súkkulaði
Toppur
 100 g Marabou Daim Bites súkkulaði
 100 g Lu Digestive hafrakex (brotið niður)
 130 g litlir sykurpúðar
 130 g súkkulaðidropar (dökkir)
Botn
1

Þeytið smjör og púðursykur þar til létt og ljóst.

2

Bætið eggjunum saman við, einu í einu og skafið niður á milli.

3

Næst fara vanilludroparnir saman við og þá hveiti, matarsódi og salt.

4

Skafið deigið vel niður og blandið síðan súkkulaðinu saman við með sleif.

5

Smyrjið pönnu/mót að innan með smjöri og þjappið deiginu síðan niður í botninn.

6

Hægt er að geyma deigið plastað í kæli í allt að 3 daga áður en það er grillað/bakað en ekki er þó þörf á að kæla það sérstaklega sé ætlunin að baka kökuna strax.

7

Hafið grillið við 180°C hita (gott að slökkva á brennaranum undir pönnunni og notast við óbeinan hita.

8

Grillið/bakið kökuna með lokað grillið í 15 mínútur, bætið þá toppinum á og lokið aftur í 3-5 mínútur eða þar til sykurpúðarnir gyllast og súkkulaðið bráðnar.

Toppur
9

Raðið öllum hráefnum ofan á kökuna þegar hún hefur verið 15 mínútur á grillinu og bakið áfram í 3-5 mínútur.

10

Gott er að bera kökuna fram með ís.