Print Options:








Skelfiskur í umslagi

Magn1 skammtur

Kryddsmjör
 250 g smjör
 4 hvítlauksgeirar
 25 g steinselja
 20 g skessujurt
 20 g hvönn
 salt og pipar
Skelfiskur
 1 pakki risarækja frá Sælkerafisk
 1 pakki hörpuskel frá Sælkerafisk
 1 pakki skelflettur humar frá Sælkerafisk
 2 stk lime
 2 stk vorlaukur, saxaður
 smá steinselja, söxuð
 smjörpappír
Kryddsmjör
1

Setjið öll hráefnin í kryddsmjöfið í matvinnsluvél og blandið vel saman.

2

Einnig má nota mortél en þá er byrjað á að merja hvítlaukinn, síðan jurtirnar og smjörið í lokin.

3

Ath. það má nota hvaða kryddjurtir sem er t.d. basil, dill og graslauk.

Skelfiskur
4

Skiptið skelfisknum jafnt á þrjár smjörpappírsarkir, ca 40x50 cm.

5

Setjið 2-3 matskeiðar af kryddsmjörinu á hverja og eina.

6

Bætið vorlauknum og smá limesafa yfir og lokið með því að snúa upp á pappírinn.

7

Setjið á heitt grillið í 1-2 mín og færið svo upp á efri grind eða lækkið alveg hitann á grillinu og eldið í ca 3 mín til viðbótar eða þar til smjörið er farið að malla vel.

8

Opnið pokana stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram með limebátum.