Print Options:








Sannkölluð Indversk matarveisla

Magn1 skammtur

Kjúklinga korma með kjúklingabauna garam masala, kókosmjólkur hrísgrjónum og heimagerðu pappadums.

Kjúklingur
 8 Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
 Patak’s Korma sósa
Kjúklingabaunir í Garam Masala
 1 msk Filippo Berio ólífuolía
 1 dós Rapunzel kjúklingabaunir
 ½ rauðlaukur
 ¼ tsk túrmerik
 ½ tsk maukað engifer frá Blue Dragon
 1 tsk maukaður hvítlaukur frá Blue Dragon
 2 msk Patak’s Garam Masala Spice paste
 1 dós hakkaðir tómatar
 ½ dl vatn
Kókosmjólkur hrísgrjón
 200 g brún hrísgrjón
 1 dós Blue Dragon kókosmjólk
 1 dl vatn
Pappadums
 1 pakki ósteikt pappadums
 1-2 dl olía (fer eftir stærð pönnunnar)
1

Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.

2

Steikið úrbeinuðu kjúklingalærin á pönnu þar til þau eru lokuð en ekki elduð í gegn. Hellið sósunni út á pönnunna og bakið inn í ofni þar til þau eru full elduð (ca. 20 min)

3

Útbúið hrísgrjónin með því að setja þau í pott ásamt kókosmjólk og vatni, sjóðið þar til tilbúin og allur vökvi hefur gufað upp.

4

Setjið olíu á pönnu og hellið kjúklingabaununum út á pönnuna. Skerið rauðlauk smátt niður og bætið út á pönnuna. Því næst kryddiði með túrmeriki, engifer mauki, hvítlauks mauki og Garam masala mauki, blandið öllu vel saman. Setjið tómatana og smá vatn á pönnuna og leyfið að malla í rólegheitum þar til kjúklingurinn er tilbúinn.

5

Steikið Pappadums með því að taka frekar litla pönnu, hellið olíu á pönnuna þannig að olían er ca 1 cm djúp. Þegar olían er orðin heit setjið eitt blað af Pappadums á pönnuna í einu. Haldið því niðri í olíunni í 3-5 sek með spaða svo það krullist ekki upp, takið svo töng og snúið því við, steikjið í ca 3-5 sek á hinni hliðinni og leggið svo á eldhúspappír til að fjarlægja auka olíuna.