Print Options:








Sætkartöflu mús

Magn1 skammtur

Bragðmikil sætkartöflumús með steikinni.

 1 stk. sætkartafla
 1 stk. bökunar kartafla
 1.dl rjómi
 1/2 stk chilli
 1-2 stk. hvítlauksgeirar
 2 tsk. estragon saxað
 2 msk. smjör og salt
1

Sætkartafla og bökunarkartafla bökuð á 200°c í c.a. 60 mín. Kartöflur skrældar. Chili, hvítlaukur og estragon saxað.

2

Soðið uppá rjóma. Kartöflum bætt útí ásamt kryddjurtum og smjöri. Hrært vel og smakkað til.