Print Options:








Sætar súkkulaðibitakökur

Magn30 skammtar

Smákökur eru alltaf bestar nýbakaðar að mínu mati og þessar hér, maður minn! Þær voru guðdómlegar nýbakaðar með ískaldri mjólk!

Smákökur
 380 g hveiti
 1 tsk matarsódi
 1 tsk salt
 230 g smjör við stofuhit
 100 g sykur
 250 g púðursykur
 2 stk egg
 2 tsk vanilludropar
 100 g smátt saxaðir Marabou Daim bitar
 100 g dökkir súkkulaðidropar
Skreyting
 300 g dökkt súkkulaði
 50 g saxaðir Marabou Daim bitar
Súkkulaðibitakökur
1

Blandið saman hveiti, matarsóda og salti, leggið til hliðar

2

Þeytið smjör, sykur og púðursykur þar til létt og ljós blanda hefur myndast

3

Bætið eggjunum saman við, einu í einu og skafið niður á milli ásamt vanilludropunum

4

Bætið næst hveitiblöndunni saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli

5

Að lokum fara Marabou Daim bitarnir og súkkulaðidroparnir saman við

6

Plastið skálina og geymið í kæli í að minnsta kosti 4 klukkustundir, líka í lagi að geyma deigið í kæli yfir nótt svo lengi sem það er vel plastað

7

Hitið ofninn í 175°C og setjið kúfaða matskeið af deigi í kúlu fyrir hverja köku, hafið gott bil á milli. Gott að raða um það bil 3 x 4 kúlum á hverja plötu

8

Bakið í 12-15 mínútur eða þar til kökurnar fara að gyllast vel á köntunum

9

Leyfið þeim síðan alveg að kólna áður en þið skreytið þær

Skreyting
10

Dýfið hverri köku til hálfs í súkkulaði, leyfið því aðeins að leka af, skafið af botninum og leggið kökurnar á bökunarpappír

11

Stráið söxuðum Marabou Daim bitum yfir súkkulaðið áður en það storknar

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 30