Print Options:








Sæt marokkósk linsusúpa

Magn1 skammtur

Djúsí linsubaunasúpa með kókosmjólk sem er tilvalin sem léttur hádegisverður eða kvöldverður.

 1 stk laukur
 1 stk geiralaus hvítlaukur
 4 stk gulrætur
 ½ stk meðalstór sæt kartafla
 1 bolli ósoðnar lífrænar rauðar linsur frá Rapunzel
 1 ½ l vatn
 1 stk tómatpasata (425g)
 1 msk karrý
 2 stk teningar grænmetiskraftur
 2 tsk marokkósk papríka, kryddblanda kryddhússins
 1 stk dós kókosmjólk frá Rapunzel
 1 stk dós Oatly rjómaostur
 ½ tsk salt
 Olía til steikingar
1

Byrjið á að saxa grænmetið mjög smátt. Ég mæli með að skræla sætu kartöfluna en það er óþarfi að skræla gulræturnar.

2

Svissið laukinn, hvítlaukinn og gulræturnar í olíu þar til laukurinn byrjar að mýkjast.

3

Bætið svo við sætu kartöflunni, jurtakrafti og kryddum og blandið og leyfið kryddunum aðeins að vakna (hitna) áður en vökvanum er bætt útí.

4

Að lokum er vatninu, tómatpassata og linsunum bætt út í og látið malla í 10-15 mínútur eða þar til linsurnar og sætu kartöflurnar eru orðnar mjúkar.

5

Bætið svo oatly smurostinum útí og leyfið að malla í 5 mínútur í viðbót. Smakkið til og saltið eftir smekk.