Print Options:








Ritz þorskhnakki með pönnusteiktu smælki

Magn1 skammtur

Sælkerafiskur í raspi.

Þorskur
 1 kg þorskhnakki
 4 msk Filippo Berio ólífuolía
 2 tsk Blue Dragon Minced Garlic hvítlauksmauk
 salt og pipar
 100 g smjör
 2 bollar Ritz kex, mulið
 1 bolli Parmareggio parmesanostur, rifinn
 1 búnt steinselja
 4 msk Heinz majónes
PÖNNUSTEIKTAR KARTÖFLUR
 litlar kartöflur, soðnar
 2 msk Filippo Berio ólífuolía
 2 msk smjör
 salt og pipar
 1 búnt grænkál
1

Veltið þorskinum upp úr ólífuolíu og hvítlauksmaukinu. Leggið þorskinn á bökunarpappír og kryddið með salti og pipar.

2

Setjið smjörið í litlum bitum yfir fiskinn og stráið muldu Ritz kexinu yfir.

3

Bakið við 180°C í 20 mínútur.

4

Rífið parmesanost og steinselju yfir fiskinn áður en hann er borinn fram.

PÖNNUSTEIKTAR KARTÖFLUR
5

Steikið kartöflurnar upp úr olíu og smjöri, bætið grænkálinu út á pönnuna og kryddið með salti og pipar.