Print Options:








Rækjusalat með risarækjum

Magn1 skammtur

Dásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það er skemmtileg tilbreyting að nota risarækjur en þær eru skornar smátt sem gerir áferðina svo góða.

 350 g Frosnar risarækjur
 Ólífuolía
 5 stk soðin egg
 1 dl Heinz majones
 Chili flögur, salt og pipar
 1 msk Fersk skorin steinselja
Gott að bera fram með
 Súrdeigsbrauð
 Sítrónusneiðar
 Avocado
 Steinselja
1

Byrjið á því að afþýða risarækjurnar.

2

Dreifið þeim á ofnplötu þakta bökunarpappír og hellið ólífuolíu, chili flögum, salti og pipar eftir smekk.

3

Bakið inní ofni við 180°C í 5-6 mínútur eða þar til rækjurnar eru eldaðar í gegn.

4

Setjið egg, risarækjur, majónes, salt, pipar og steinselju á skurðarbretti og skerið smátt.

5

Berið fram á góðu brauði með avókadó, sítrónusneiðum og skreytið með steinselju. Njótið.